• Home
  • CV
  • Greinar og pistlar
  • Myndasafn
  • Um höfundinn

Ásgrímur Kristján Sverrisson (test)

Just another WordPress.com weblog

Feeds:
Posts
Comments

Um höfundinn

Ásgrmur Sverrisson

ÁSGRÍMUR SVERRISSON
Stutt ferilágrip

Ásgrímur Sverrisson er fæddur 1964. Hann gerði fjölda stuttmynda á unglingsárunum og voru ýmsar þeirra verðlaunaðar á hátíðum heima og erlendis. Ásgrímur stundaði nám í leikstjórn við hinn virta National Film and Television School í Bretlandi og útskrifaðist þaðan 1994. Bæði fyrir og eftir námið hefur hann unnið fjölda kvikmyndaverkefna af fjölbreyttum toga; þ.á.m. heimildamyndir, leiknar sjónvarpsmyndir, auglýsingar og tónlistarmyndbönd auk margskonar dagskrárgerðar fyrir sjónvarp. Þá var hann einn af fimm leikstjórum bíómyndarinnar Villiljós sem frumsýnd var 2001.

Ásgrímur hefur verið ritstjóri tímaritsins Land & synir frá upphafi (1995) ef undan eru skilin þrjú ár (98-01). 2003 hóf Land & synir göngu sína á vefnum (www.logs.is) og er það nú ein helsta frétta- og upplýsingaveita um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeirann. Ásgrímur hefur einnig starfað sem kvikmyndagagnrýnandi, bæði fyrir sjónvarp og prentmiðla og hefur auk þess fjallað um kvikmyndir á ýmiskonar vettvangi um margra ára skeið. Þá var hann einn þeirra sem komu Edduverðlaununum á fót 1999 og var framkvæmdastjóri þeirra fyrstu þrjú árin. Hann situr nú í stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar fyrir hönd Samtaka kvikmyndaleikstjóra.

Nýjasta verk Ásgríms er Taka 2, tíu þátta röð sem frumsýnd var í Sjónvarpinu veturinn 2005, þar sem spjallað er við íslenska kvikmyndaleikstjóra um verk þeirra og sýnd brot úr þeim. Önnur tíu þátta röð um sama efni var sýnd í Sjónvarpinu á tímabilinu maí-júlí 2006.

Smelltu hér til að lesa viðtal við Ásgrím Sverrisson þar sem hann spjallar við Sigríði Pétursdóttur kvikmyndafræðing um verk sín. Viðtalið er frá 2002.

Comments Off

  • Recent Posts

    • Að kveldi hugsana minna
    • Óskarstilnefningarnar
    • Hvar verður aukningin á íslensku efni í RÚV?
    • RÚV: Hugsum út fyrir rammann
    • Framtíðin er hér
  • Archives

    • January 2007
    • December 2006
    • November 2006
    • October 2006
    • September 2006
    • August 2006
    • July 2006
    • June 2006
    • May 2006
    • April 2006
  • Categories

    • Bækur
    • Gönguklúbbur Gríms
    • Kvikmyndir
    • Pólitík
    • Sjónvarp
    • Tilveran
  • Blog Stats

    • 373 hits
  • Recent Comments

    Mubarak on Hvar verður aukningin á íslens…
    The Editor on Hvar verður aukningin á íslens…
    maría kristjánsdótti… on Hvar verður aukningin á íslens…
    Hvar verður aukningi… on RÚV: Hugsum út fyrir ramm…
    Davíð Þór on Framtíðin er hér
  • Meta

    • Log in
    • Entries RSS
    • Comments RSS
    • WordPress.com

Blog at WordPress.com.

Theme: Mistylook by Sadish.