Hér finnur þú greinar og pistla eftir mig um mál tengd kvikmyndum og sjónvarpi allt frá 1993 til 2005. Þetta er aðeins lítið brot af því sem ég hef skrifað um þessi efni í gegnum árin, í raun allt frá 1976. Kannski ratar eitthvað af því hingað með tíð og tíma.
Margskonar greinar eftir mig má einnig finna á vef Lands & sona. Meðal prentmiðla sem ég hef skrifað í, auk Lands & sona, má nefna Morgunblaðið, DV, Alþýðublaðið, Helgarpóstinn, Mannlíf, Vikuna, Samúel, Lúxus, Lesbók Morgunblaðsins, Variety, International Film Guide, Fókus, Heimsmynd, Tímarit Máls og Menningar, Æskuna, Myndmál, Kvikmyndablaðið og Kvikmyndir. Eru þá ónefnd skólablöðin…
Skoðaðu dálkinn "Sub Pages" hér til hægri og smelltu á tengil viðkomandi greinar.
Fjölmiðlar sem ég hef ritstýrt:
Uglan (1976-1978)
Fyrsta blaðið mitt. Ég var ekki orðinn tólf ára þegar fyrsta heftið kom út. Meðritstjórar mínir voru Hjörtur bróðir minn og Sigurjón Þorsteinsson. Ég var afskaplega róttækur vinstrimaður á þessum árum og í blaðinu birtist meðal annars harkaleg gagnrýni á Geir Hallgrímsson og stjórn hans. Einnig kvikmyndagagnrýni ofl.
Fókus (1978)
Þetta var blað um kvikmyndir og ljósmyndir. Aðeins eitt hefti kom út. Hallur Helgason og Ævar Örn Jósepsson tóku einnig þátt í útgáfunni.
Fita (1978-1979)
Þetta rit varð til þegar Ugla sameinaðist Júmbó sem Hallur Helgason hafði gefið út. Við vorum í Lækjarskóla í Hafnarfirði og fengum Stefán Hjörleifsson vin okkar til liðs við okkur. Sérlegur hirðteiknari blaðsins var Kári Eiríksson.
Fréttabréf NFF (1979-1980; 1981-1982)
Fréttabréf Nemendafélags Flensborgarskóla. Fyrra tímabilið með Halli Helgasyni, seinna tímabilið með Davíð Þór Jónssyni.
Draupnir (1980-1981)
Skólablað Nemendafélags Flensborgarskóla. Í ritnefnd voru einnig Úlfar Bergþórsson, Ragnar Óskarsson, Tryggvi Þór Jóhannsson og Þorvar Hafsteinsson sem var titlaður "ritstjóri". En þetta var svona kollektív og mikill anarkismi í gangi.
Myndmál (1983-1985)
Alls komu út sjö hefti á tveimur árum af þessu kvikmyndablaði, sem tók upp þráðinn frá Kvikmyndablaði Friðriks Þórs sem kom út 1980-1982.
Land & synir (1995-1998; frá 2001)
Arftaki Fréttabréf Félags kvikmyndagerðarmanna. Upphaflega gefið út af Félagi kvikmyndagerðarmanna en frá 2003 af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni.
Asgrimur.is (2002-2003)
Fyrsti vefurinn minn. Þarna birtust fréttir og greinar um íslenskar kvikmyndir og kvikmyndir almennt. Einskonar forveri vefs Lands & sona.
Logs.is (frá 2003)
Vefútgáfa Lands & sona. Frétta-, greina- og upplýsingavefur Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Fjallar um íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeirann. Ensk útgáfa vefsins fór í loftið í maí 2006.