En getur hún hellt uppá gott kaffi?
Archive for the ‘Tilveran’ Category
Framtíðin er hér
Posted in Tilveran on January 9, 2007 | 1 Comment »
Útí Eyjum
Posted in Tilveran on January 3, 2007 | Leave a Comment »
…bjó Einar kaldi, er hann hér enn? Eins og segir í kvæðinu. En annars gerðist sú skemmtilega uppákoma að öðlingurinn Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður bauð okkur feðginum útí Eyjar á næstsíðasta degi ársins. Við þáðum með þökkum enda aldrei í Eyjar komið – hvorugt okkar! Páll var að sýna sínu heimafólki mynd sem hann hafði gert um [...]
Áramótaganga
Posted in Tilveran on December 31, 2006 | Leave a Comment »
Við félagarnir í Gönguklúbbi Gríms tókum stöðuna við áramót í gær. Ljóst er að meðlimir ganga glaðir mót nýju ári og nýjum tækifærum. Davíð Þór og Hallur voru fjarverandi en báðu að heilsa. Ástand okkar fyrir ári síðan má sjá hér (skrunið neðarlega á síðu).
Útlönd, Ásgrímska og eðli alls sem er
Posted in Tilveran on October 24, 2006 | Leave a Comment »
Gönguklúbbur Gríms á gamlársdag 2005.
Mér þykir Davíð Þór vinur minn gera mér óþarflega hátt undir höfði í pistli á bloggi sínu þar sem hann segir ágæta öpunarkenningu sína lúta í duftið gagnvart því sem hann kallar “Ásgrímsku”. Kenninguna hafði ég viðrað í léttu spjalli okkar félaga á Súfistanum um daginn, eftir eina af okkar vikulegu kraftgöngum [...]
Dagur í Nexö
Posted in Tilveran on June 2, 2006 | 2 Comments »
Við Friðrik Erlingsson dveljum þessa dagana í Svaneke á Borgundarhólmi þar sem fram fer North By Northwest handritavinnustofan. Þetta er afskaplega huggulegur bær með haug af gömlum og sætum húsum. Næsti bær við Svaneke er Nexö, heimabær danska stórskáldsins Martin Andersen Nexö, sem m.a. skrifaði Pelle sigurvegara og Dittu mannsbarn. Við félagarnir heimsóttum hús skáldsins, [...]
Tregasöngur um Sylvíu
Posted in Tilveran on May 20, 2006 | Leave a Comment »
Huldusveitin Miðaldra menn frá Hofsósi gaf nýlega út þetta ágæta lag með nýjum texta þar sem Næturdrottningin er hyllt. Í ljósi nýjustu atburða hefur lagið tekið á sig þessa einu sönnu tregastemmningu.
Exit, stage left
Posted in Tilveran on May 18, 2006 | Leave a Comment »
Flúinn er dvergur, dáin hamratröll, dauft er í sveitum, hnípin þjóð í vanda; en lágum hlífir hulinn verndarkraftur, hólmanum, þar sem Sylvía sneri aftur. Já, hún er horfin, þetta er búið og eftir stöndum við, dauðlegar verur. Sumir segja að hún hafi þegar haldið á Ólympsfjall. Aðrir að hún hafi farið til Hollywood. Orðrómur er [...]
Hvað sagði ég ekki?
Posted in Kvikmyndir, Tilveran on May 17, 2006 | Leave a Comment »
Aftur. Þetta snýst ekki um meint guðlast. Bara góðar myndir. Sjá Variety.
Michael Billington glaður með íslenskt leikhús
Posted in Tilveran on May 16, 2006 | Leave a Comment »
Rakst á þetta blogg frá Michael Billington, leikhúsgagnrýnanda The Guardian, þar sem hann talar fjálglega um Pétur Gaut Baltasars, Fagnað Stefáns Jónssonar og íslenskt leikhús almennt. Svo var hann líka ánægður með landslagið…
Kvikmyndaunnandi með fyrirslátt(?)
Posted in Kvikmyndir, Tilveran on May 16, 2006 | Leave a Comment »
Ég held að þessi ágæti bíóeigandi í Færeyjum, Jákup Eli Jacobsen í Hafnarbíói (Havnar bio), sé sannur kvikmyndaunnandi og leitist við að sýna löndum sínum vandaðar myndir eftir fremsta megni. Ég held að þessvegna setji hann blátt bann við því að The Da Vinci Code komi inn fyrir hans dyr. Held að allt tal hans [...]