Feeds:
Posts
Comments

Archive for the ‘Kvikmyndir’ Category

Óskarstilnefningarnar

Óskar hefur tilnefnt og allt er það gott og blessað held ég, nema skandall að þeir skyldu gleyma United 93 sem er snilld. Að vísu er Paul Greengrass tilnefndur sem leikstjóri - en ekki hvað – maðurinn er séní. Hefðu frekar mátt sleppa The Departed sem er allt í lagi svosem en ekkert merkileg. Mike Newell, [...]

Read Full Post »

High Maintenance

Fann þessa snilldarstuttmynd á netinu. Hún heitir High Maintenance og vann Berlinale Talent Campus í fyrra. Segir alltof skýrt og skorinort frá samskiptum kynjanna. Kíkið á hana hér. Svo er ekki nema sjálfsagt að tékka frekar á síðu leikstjórans, Phillip Van, sem virðist vera talent í uppsiglingu. Hann kallar myndina “A Short Film About Our Future”. [...]

Read Full Post »

“Kvikmyndin er dauð” segir Sigurjón Kjartansson borginmannlega í einhverju blaðinu í dag og fer svo að þvaðra um ágæti sjónvarps. Plís. Minnir á  gamlan brandara: “Guð er dauður” – Nietzsche. “Nietzsche er dauður” – Guð.

Read Full Post »

Samræða er hér

Mínútumyndin mín, Samræða, er komin á vefinn og hægt að skoða hana hér. Bestu þakkir til Ólafs De Fleur Jóhannessonar fyrir hýsingu og alla aðra hjálp. Sömuleiðis til leikara og tökuliðs. Allt frábært fólk og dásamlegt að vinna með. Myndin var gerð sem hluti af Mínútumyndaverkefni Félags kvikmyndagerðarmanna í tilefni 40 ára afmælis félagsins í [...]

Read Full Post »

Langaði bara að lýsa ánægju minni með að Saul Bass er enn á meðal vor – og enn að gera titla fyrir Scorsese. Saul Bass er grafískur meistari, sjá hér. Jæja ókei, hann var… því meistarinn lést 1996. Veit ekki hver gerði teaser poster fyrir The Departed en það er einhver sem fetar í fótsporin [...]

Read Full Post »

Vendipunktur í vindinum?

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík (AKÍR) hefst 28. september og stendur í ellefu daga. Dagskráin var borin í hús í dag og við lestur hennar kemur í ljós að hátíðin er að springa út eftir eðlilegan reynslutíma. Ég minnist þess ekki að áður hafi verið boðið uppá jafn fjölbreytta og sannfærandi kvikmyndahátíð á Íslandi. Ekki aðeins [...]

Read Full Post »

Ágúst Guðmundsson leikstjóri og formaður Bandalags íslenskra listamanna, skrifar grein í Morgunblaðið 24. júlí þar sem hann hvetur til þess að leyfi til sjónvarpsútsendinga verði háð því að ákveðinn hluti dagskrár verði helgaður innlendu efni. Morgunblaðið fjallaði um grein Ágústs í leiðara daginn eftir. Að áliti blaðsins er óþarfi að skilyrða leyfi með þessum hætti [...]

Read Full Post »

Í nýbirtri könnun sem American Film Institute stóð fyrir meðal þarlendra leikstjóra, gagnrýnenda og annarra innanbúðarmanna, kemur fram að mynd Frank Capra, It's a Wonderful Life, er helst til þess fallin að vekja mönnum innblástur og von. Þetta kemur ekki sérlega á óvart enda myndin eiginlega hluti af jólahaldi Ameríkana og raunar margra annarra þjóða, til [...]

Read Full Post »

Jæja, var að sjá The Da Vinci Code. Skrýtin skepna. Þar sem myndin hefur fengið upp til hópa neikvæð viðbrögð átti maður ekki von á góðu, en hún er alveg þokkaleg sem reyfari. Hún er ógnarlöng en leið samt fljótt og vel. Í raun hefði ég viljað hafa hana miklu lengri. En það var ekki vegna [...]

Read Full Post »

Aftur. Þetta snýst ekki um meint guðlast. Bara góðar myndir. Sjá Variety.

Read Full Post »

Older Posts »