Feeds:
Posts
Comments

Archive for January, 2007

Að kveldi hugsana minna

Var að klára Óvini ríkisins eftir Guðna Th. Jóhannesson, afar fróðleg bók og stórskemmtileg. Hlerunarmál aukaatriði, þetta er fyrst og fremst íslensk andófssaga seinniparts tuttugustu aldarinnar. Ys og þys út af engu á báða bóga. Dásamlegt. Er núna að lesa Skáldalíf Halldórs Guðmundssonar og skemmti mér einnig konunglega. Hlakka svo óskaplega að snúa mér að [...]

Read Full Post »

Óskarstilnefningarnar

Óskar hefur tilnefnt og allt er það gott og blessað held ég, nema skandall að þeir skyldu gleyma United 93 sem er snilld. Að vísu er Paul Greengrass tilnefndur sem leikstjóri - en ekki hvað – maðurinn er séní. Hefðu frekar mátt sleppa The Departed sem er allt í lagi svosem en ekkert merkileg. Mike Newell, [...]

Read Full Post »

Jæja, búið að samþykkja RÚV-frumvarpið og hvað nú? Enn og aftur: sjónvarp er ekkert nema dagskrá. Í framhaldi af síðasta pistli: á vef Alþingis er að finna svar menntamálaráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar um hlutfallslega skiptingu íslensks efnis á kjörtíma (19-23) í Sjónvarpinu á undanförnum árum. Þar kemur ýmislegt athyglisvert fram eins og sjá má af eftirfarandi [...]

Read Full Post »

RÚV: Hugsum út fyrir rammann

Úff… RÚV-frumvarpið! Þingþjarki lokið sem betur fer og þó fyrr hefði verið. Í öllum hamaganginum og fjasinu um aukaatriði sem geysað hefur að undanförnu um blessað Ríkisútvarpið er nauðsynlegt að minna enn og aftur á eftirfarandi: Eina réttlætingin fyrir tilvist RÚV er fjölbreytt framboð á góðri innlendri dagskrá. Allt annað er aukaatriði. Sjónvarp er dagskrá [...]

Read Full Post »

Framtíðin er hér

En getur hún hellt uppá gott kaffi?

Read Full Post »

Útí Eyjum

…bjó Einar kaldi, er hann hér enn? Eins og segir í kvæðinu. En annars gerðist sú skemmtilega uppákoma að öðlingurinn Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður bauð okkur feðginum útí Eyjar á næstsíðasta degi ársins. Við þáðum með þökkum enda aldrei í Eyjar komið – hvorugt okkar! Páll var að sýna sínu heimafólki mynd sem hann hafði gert um [...]

Read Full Post »

High Maintenance

Fann þessa snilldarstuttmynd á netinu. Hún heitir High Maintenance og vann Berlinale Talent Campus í fyrra. Segir alltof skýrt og skorinort frá samskiptum kynjanna. Kíkið á hana hér. Svo er ekki nema sjálfsagt að tékka frekar á síðu leikstjórans, Phillip Van, sem virðist vera talent í uppsiglingu. Hann kallar myndina “A Short Film About Our Future”. [...]

Read Full Post »