Við félagarnir í Gönguklúbbi Gríms tókum stöðuna við áramót í gær. Ljóst er að meðlimir ganga glaðir mót nýju ári og nýjum tækifærum. Davíð Þór og Hallur voru fjarverandi en báðu að heilsa. Ástand okkar fyrir ári síðan má sjá hér (skrunið neðarlega á síðu).
Archive for December, 2006
Áramótaganga
Posted in Tilveran on December 31, 2006 | Leave a Comment »
Það er nefnilega það…
Posted in Kvikmyndir on December 28, 2006 | Leave a Comment »
“Kvikmyndin er dauð” segir Sigurjón Kjartansson borginmannlega í einhverju blaðinu í dag og fer svo að þvaðra um ágæti sjónvarps. Plís. Minnir á gamlan brandara: “Guð er dauður” – Nietzsche. “Nietzsche er dauður” – Guð.
Tryggðarpantur
Posted in Bækur on December 26, 2006 | Leave a Comment »
Var að klára að lesa skáldsöguna Tryggðarpantur eftir Auði Jónsdóttur og í stuttu máli er hún afbragð. Hef ekki lesið Auði áður en hef nú reynt á eigin sinni að konan er afspyrnu fínn penni. Hafði þó fengið ávæning af því áður. Sagan gerist í óræðri vestrænni stórborg og fjallar um Gísellu Dal, arfríkan iðjuleysingja, [...]
Samræða er hér
Posted in Kvikmyndir on December 15, 2006 | Leave a Comment »
Mínútumyndin mín, Samræða, er komin á vefinn og hægt að skoða hana hér. Bestu þakkir til Ólafs De Fleur Jóhannessonar fyrir hýsingu og alla aðra hjálp. Sömuleiðis til leikara og tökuliðs. Allt frábært fólk og dásamlegt að vinna með. Myndin var gerð sem hluti af Mínútumyndaverkefni Félags kvikmyndagerðarmanna í tilefni 40 ára afmælis félagsins í [...]