Feeds:
Posts
Comments

Archive for May, 2006

Jæja, var að sjá The Da Vinci Code. Skrýtin skepna. Þar sem myndin hefur fengið upp til hópa neikvæð viðbrögð átti maður ekki von á góðu, en hún er alveg þokkaleg sem reyfari. Hún er ógnarlöng en leið samt fljótt og vel. Í raun hefði ég viljað hafa hana miklu lengri. En það var ekki vegna [...]

Read Full Post »

Leikrit

Skondin þessi umræða um hlerunarmálið. Allt gengur eins og eftir bókinni. Eins og þátttakendur fylgi bara handritinu. Aldnar kempur og meint fórnarlömb stíga á stokk og lýsa hneykslan sinni – eins og þeir hafi ekki vitað (eða a.m.k. grunað), stjórnarandstaðan reynir að slá pólitískar keilur, dómsmálaráðherra endurtekur gamlan söng sinn um kaldastríðsuppgjör, Morgunblaðið rifjar upp [...]

Read Full Post »

Huldusveitin Miðaldra menn frá Hofsósi gaf nýlega út þetta ágæta lag með nýjum texta þar sem Næturdrottningin er hyllt. Í ljósi nýjustu atburða hefur lagið tekið á sig þessa einu sönnu tregastemmningu.

Read Full Post »

Exit, stage left

Flúinn er dvergur, dáin hamratröll, dauft er í sveitum, hnípin þjóð í vanda; en lágum hlífir hulinn verndarkraftur, hólmanum, þar sem Sylvía sneri aftur. Já, hún er horfin, þetta er búið og eftir stöndum við, dauðlegar verur. Sumir segja að hún hafi þegar haldið á Ólympsfjall. Aðrir að hún hafi farið til Hollywood. Orðrómur er [...]

Read Full Post »

Aftur. Þetta snýst ekki um meint guðlast. Bara góðar myndir. Sjá Variety.

Read Full Post »

Rakst á þetta blogg frá Michael Billington, leikhúsgagnrýnanda The Guardian, þar sem hann talar fjálglega um Pétur Gaut Baltasars, Fagnað Stefáns Jónssonar og íslenskt leikhús almennt. Svo var hann líka ánægður með landslagið…

Read Full Post »

Ég held að þessi ágæti bíóeigandi í Færeyjum, Jákup Eli Jacobsen í Hafnarbíói (Havnar bio), sé sannur kvikmyndaunnandi og leitist við að sýna löndum sínum vandaðar myndir eftir fremsta megni. Ég held að þessvegna setji hann blátt bann við því að The Da Vinci Code komi inn fyrir hans dyr. Held að allt tal hans [...]

Read Full Post »

Ryan Gosling (Half Nelson, The Notebook) and Tom Waits (Short Cuts, Down By Law) have signed on to star in The Good Heart, the next film from Icelandic director Dagur Kari, whose highly acclaimed films include festival favorites Nói albínói and Voksne mennesker (English title: Dark Horse). Katapult Film Sales are handling worldwide sales rights [...]

Read Full Post »

Sá ágæti skrifari Will Hutton hjá Observer hinu breska fjallar gjarnan af skarpskyggni og næmni um samfélagsþróun. Í nýbirtum pistli fjallar hann um áhersluna á val neytandans sem verið hefur ríkjandi kennisetning á Vesturlöndum um langa hríð. En er valfrelsið endilega alltaf svarið við þeim vandamálum sem hrjá mannskepnuna? Þetta er þörf hugvekja og hana [...]

Read Full Post »

Sylvía Nótt er án nokkurs efa barnabarn annarrar stjörnu, Vailu Veinólíno úr Tinnabókunum, sem eitt sinn sagði þegar hún vildi hitta Kolbein kaftein: "Listin stígur niður af himnum til lágstéttanna." Þetta fjölleikahús er að taka á sig afar athyglisvert form þessa dagana. Þeir sem halda um strengi kunna að byggja upp dramatík og stefna örugglega inní [...]

Read Full Post »

Older Posts »