Feeds:
Posts
Comments

Var að klára Óvini ríkisins eftir Guðna Th. Jóhannesson, afar fróðleg bók og stórskemmtileg. Hlerunarmál aukaatriði, þetta er fyrst og fremst íslensk andófssaga seinniparts tuttugustu aldarinnar. Ys og þys út af engu á báða bóga. Dásamlegt. Er núna að lesa Skáldalíf Halldórs Guðmundssonar og skemmti mér einnig konunglega. Hlakka svo óskaplega að snúa mér að fyrra bindi ævisögu Georges Clemenceau (1841-1929), fyrrum forsætisráðherra Frakka, In the Evening of My Thought (algjörlega frábær titill). Fann hana hjá Friðriki vini mínum Erlingssyni. Fyrra bindið er 482 síður og virðist stútfullt af djúpri speki, sbr. upphafið: Continue Reading »

79th PosterÓskar hefur tilnefnt og allt er það gott og blessað held ég, nema skandall að þeir skyldu gleyma United 93 sem er snilld. Að vísu er Paul Greengrass tilnefndur sem leikstjóri - en ekki hvað – maðurinn er séní. Hefðu frekar mátt sleppa The Departed sem er allt í lagi svosem en ekkert merkileg. Mike Newell, Johnny Depp og Al Pacino gerðu þetta allt miklu betur um árið í Donnie Brasco. Hvernig er þetta annars með kallinn Scorsese, hann hefur eiginlega ekki gert verulega góða mynd síðan Goodfellas (1990)og síðan eru liðin mörg ár… Jújú, Age of Innocence, Casino og Bringing Out the Dead áttu allar spretti. Svo hefur hann líka gert fínar heimildamyndir og ber þar hæst A Personal Journey with Martin Scorsese Through American Movies (1995).

Continue Reading »

Jæja, búið að samþykkja RÚV-frumvarpið og hvað nú? Enn og aftur: sjónvarp er ekkert nema dagskrá. Í framhaldi af síðasta pistli: á vef Alþingis er að finna svar menntamálaráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar um hlutfallslega skiptingu íslensks efnis á kjörtíma (19-23) í Sjónvarpinu á undanförnum árum. Þar kemur ýmislegt athyglisvert fram eins og sjá má af eftirfarandi töflu: Continue Reading »

baird TVÚff… RÚV-frumvarpið! Þingþjarki lokið sem betur fer og þó fyrr hefði verið. Í öllum hamaganginum og fjasinu um aukaatriði sem geysað hefur að undanförnu um blessað Ríkisútvarpið er nauðsynlegt að minna enn og aftur á eftirfarandi: Eina réttlætingin fyrir tilvist RÚV er fjölbreytt framboð á góðri innlendri dagskrá. Allt annað er aukaatriði. Sjónvarp er dagskrá og sjónvarp á vegum ríkisins er íslensk dagskrá. Continue Reading »

Introducing iPhone

En getur hún hellt uppá gott kaffi?

Útí Eyjum

vestmannaeyjar 1…bjó Einar kaldi, er hann hér enn? Eins og segir í kvæðinu. En annars gerðist sú skemmtilega uppákoma að öðlingurinn Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður bauð okkur feðginum útí Eyjar á næstsíðasta degi ársins. Við þáðum með þökkum enda aldrei í Eyjar komið – hvorugt okkar! Páll var að sýna sínu heimafólki mynd sem hann hafði gert um ginklofa, skelfilegan hrörnunarsjúkdóm sem herjaði m.a. á Vestmannaeyinga og íbúa St. Kildu langt fram á 20. öldina. Continue Reading »

Fann þessa snilldarstuttmynd á netinu. Hún heitir High Maintenance og vann Berlinale Talent Campus í fyrra. Segir alltof skýrt og skorinort frá samskiptum kynjanna. Kíkið á hana hér. Svo er ekki nema sjálfsagt að tékka frekar á síðu leikstjórans, Phillip Van, sem virðist vera talent í uppsiglingu. Hann kallar myndina “A Short Film About Our Future”. Napurt. Þarna má innan tíðar sjá fleiri myndir eftir kauða.

Áramótaganga

Gönguklúbbur Gr�ms 30.12.06

Við félagarnir í Gönguklúbbi Gríms tókum stöðuna við áramót í gær. Ljóst er að meðlimir ganga glaðir mót nýju ári og nýjum tækifærum. Davíð Þór og Hallur voru fjarverandi en báðu að heilsa. Ástand okkar fyrir ári síðan má sjá hér (skrunið neðarlega á síðu).

“Kvikmyndin er dauð” segir Sigurjón Kjartansson borginmannlega í einhverju blaðinu í dag og fer svo að þvaðra um ágæti sjónvarps. Plís. Minnir á  gamlan brandara: “Guð er dauður” – Nietzsche. “Nietzsche er dauður” – Guð.

Tryggðarpantur

Var að klára að lesa skáldsöguna Tryggðarpantur eftir Auði Jónsdóttur og í stuttu máli er hún afbragð. Hef ekki lesið Auði áður en hef nú reynt á eigin sinni að konan er afspyrnu fínn penni. Hafði þó fengið ávæning af því áður. Sagan gerist í óræðri vestrænni stórborg og fjallar um Gísellu Dal, arfríkan iðjuleysingja, sem uppgötvar að arfurinn er tæmdur og til að halda fína húsinu í miðborginni ákveður hún að taka inn leigjendur. Þrjár konur af erlendu bergi brotnar verða fyrir valinu og hefst þá ballið. Konurnar samþykkja að lúta húsreglum Gísellu og í fyrstu eru þær blanda af almennri skynsemi og dálitlum einkennilegheitum. Konurnar (og lesandinn) láta gott heita. Í fyrstu segi ég, því ein klausan er á þá leið að Gísella áskilur sér rétt að bæta fleiri reglum við þegar þurfa þykir. Jafnframt kveður önnur regla á um að Gísella hafi jafnan síðasta orðið þegar misklíð kemur upp (útúrdúr: þessi regla kallast í kvikmyndabransanum “final cut” og er ávísun á vandræði nema gagnkvæmur skilningur ríki á því að hún verði helst ekki brúkuð).

Continue Reading »

Older Posts »